|
07.10.2008 08:25:22 / totab
Hæ,hæ aftur gleymdi að setja inn eina afmælisgjöf hehe!Ég fékk ég líka peysu frá Lúlla og Óskari svarta rúllukraga peysu rosa flott og þægileg
»
09.04.2008 13:50:04 / totab
»
17.02.2008 18:24:06 / totab
Hæ,hæ jæja þá ættla ég að skrifa nokkrar línur fyrir ykkur núna! Við fórum á Akureyri með Margréti Lilju síðastliðinn Mánudag.Við byrjuðum á því að fara með hann Birgir okkar til Stellu um morguninn svo fór hún með hann á leikskólann. Þegar við komum á Akureyri þá fórum við upp á Barnadeildina og létum skrá Margréti inn svo biðum við aðeins á biðstofunni þar svo kom hjúkka eftir smá stund og bað okkur að koma með sér þar var Margrét viktuð mæld lengd og svona skoðuð svo var okkur boðið að fara með hana inn í risastórt leikherbergi með fullt af leikföngum svo vorum við búin að vera þar í svona 30 min þá var okkur fylgt niðrí röngen og þar biðum við smá og voru teknar 4 myndir af henni þar og þvílíkur grátur hjá einu barni oooo hvað ég fann til með snúlluni minni en svo vorum við send upp aftur og þar var henni boðinn mauk matur rosa flott fékk maukað Buff,karteflur og Gulrætur og ég var kannski búin að gefa henni einn bita að þá erum við kölluð niður aftur díses þá í ómun en jæja það gékk allt vel þar svo fórum við upp aftur og þá fékk prinsessan loksins matinn sinn mjög ánægð með það svo biðum við örugglega í svona einn og hálfan tíma eftir lækninum svo kom hún loksins og þá kom í ljós að það er bara allt í lagi með stelpuna okkar sem betur fer og hún skoðaði hana alla í leiðinni og kom hún bara vel út. Svo er bara allur snjórinn farinn LOKSINS segi ég nú bara hehe svo á Föstudagunn fékk é pakka að vestan frá Ástu systir og co það var sko ýmislegt í honum þar var td skartgripaskríni frá mömmu ,Bangsi til Margrétar ,skeið og gaffall til að hengja upp á vegg svona stórt það er líka frá mömmu svo var eitt stikki Fartalva sem að siggi mágur var að laga fyrir okkur sem að Svanur fann á ruslahaugunum og harði diskurinn var ónýtur í henni en hann siggi minn reddaði þessu eins og ný þessi talva Takk Siggi. Annars er bara lítið að frétta af okkur Börnin svona alveg að verða hress smá kvef og svona sama sagan með mig . Og viti menn ég hef smá fréttir af mér eða mér finnst það allavega ég er hætt að NAGA NEGLURNAR já ótrúlegt en satt þá kom sá dagur upp hehe ég er sko búin að naga þær síðan ég var 2 eða3 ára amn ekki eftir því Mamma reyndi oft að láta mig hætta þessu þegar ég var krakki en ekkert virkaði en svo um daginn þá fékk ég eiginlega bara nóg híhí keypti mér svona anti-bait eitthvað með vondu bragði til að setja á neglurnar og viti menn þetta bara virkaði það eru komnar núna 2-3 vikur síðan og þær eru að vaxa rólega upp rosa dugleg stelpa sko er reyndar að drepast í fingurgómunum núna það er bara út af þær eru að vaxa það lagast en samt soldið skrítið en verð orðin svaka skvísa í sumar og já gleymdi næstum því ég fór í klippingu um daginn og er bara eiginlega komin með stutt hár rosa sæt voða skrítið fyrst en rosa flott samt en jæja læt þetta duga núna er komin smá ritgerð hér
kv Tótan....
»
07.02.2008 23:49:41 / totab
Hæhæ jæja þá erum við
búin að fara með Margréti til Barnalæknisins og kom það ekki
vel út við erum að fara til Akureyrar á mánudaginn með hana á
FSA á Barnadeildina hún þarf að fara í Röngenmyndatöku,ómun
og kannski í sneiðmyndatöku,við eigum að mæta með hana kl
10:30.Ástæðan er sú að það gæti verið að vinstra heilahvelið
sé ekki að stækka rétt þess vegna þarf að skoða þetta þetta
kemur útaf sveppnum sem hún var með á höfðinu þegar hún
fæddist en hann fór ekki strax eins og hefði átt að vera það
tók 5 vikur að fara og höfðið á henni skekktist við það og
við fórum í sjúkraþjálfun til að laga skekkjuna en þá kom í
ljós að hálsvöðvarnir að aftan hægramegin eru of stuttir þess
vegna hefur hún nánast ekkert getað farið með höfuðið til
hægri og Lækninum fannst skekkjan vera of mikil miðað við
allt saman þannig er þetta þá en við vonum að þetta fari
allt á besta veg.en ég nenni ekki að pikka meira í bili þarf
að fara að sofa mér
kv
Tótan
»
03.02.2008 14:42:22 / totab
»
26.01.2008 17:03:00 / totab
»
22.01.2008 23:43:56 / totab
Það væri gaman að sjá útkomuna hvað þið segið 1. miðnafnið þitt: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Uppáhalds búð: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku saman? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla 26. Ef ég ætti einn dag ólifaðan, hvað myndum við gera saman? 27. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út? kv Tótan
»
20.01.2008 20:42:25 / totab
Halló þá er ég mætt aftur fyrir framan þennan skjá og ættla að reyna að skrifa eitthvað hér inn.Við Margrét erum að fara í sjúkraþjálfun á morgun svo erum við að byrja aftur í Mömmuleikfiminni Loksins er búin að vera að bíða eftir þessu híhí.Svo bara snjóar og snjóar hér endalaust finnst mér Arrrrg ég er ekki sátt við það sko! Svo er Svanur minn í fríi út þennan mánuð ekkert smá næs hann er að taka sumarfríið sitt fyrirfram því hann á alveg 3 mánuði eftir í fæðingarorlofinu sem hann tekur í sumar voðalega fínt að hafa kallinn heima Stundum gæti ég orðið rugluð langar svo að geta hringt í Mömmu og tala við hana spjalla bara um daginn og veginn eða bara Börnin mín eða ekki neitt eins og við gerðum svo oft en það er víst ekki hækt því miður ooooo ég gæti orðiðið svo reið stundum yfir því þegar að fólk deyr langt fyrir aldurfram.......Þetta er svo ósanngjarnt æi ég ættla nú ekki að vera að væla í ykkur hér varð bara aðeins að losa um hjá mér!!!! En annars er nú voða lítið að frétta á þessum bæ Jú síðasta sunnudag fórum við suður að sækja hana Sigríði Ástu á Keflavíkurflugvöll því hún þurfti að koma í kvelli heim útaf lélegum aðstæðum úti og byrjar hún í skólanum hér sennilega á Þriðjudaginn það verður fínt fyrir hana að kynnast krökkum og svona og hún klárar skólann hér og fer svo með Mömmu sinni til Danmerkurs aftur í júní hún er mjög ánægð með það og við líka Voða gott að hafa hana En læt þetta duga í bili núna kemur meira Blogg í vikunni heyrumst þá  Tótan Kveður í bili Over and out
»
15.01.2008 11:47:15 / totab
»
07.10.2007 10:12:47 / totab
Halló!!! Jæja ég verð að fara að vera duglegri við þetta Blogg mitt. En það er bara allt fínt að frétta hér Það var allt hvítt hér þegar við vöknuðum í gærmorgun! ekki sátt við það sko brrr kalt! Svo er Birgir náttúrulega alltaf á leikskólanum eftir hádegið og gengur það bara vel finnst voða gaman þar svo með hana Margréti er allt fínt að frétta gengur rosa vel með hana Draumabarn sefur alla nóttina alltaf er að sofna svona milli 10 og 11 á kvöldin og vaknar um 8 leitið á morgnanna bara æði svo bara góð á daginn sefur svona 4 tíma í vagninum eftir hádegið Gæti ekki beðið um betra barn En svo erum við Margrét í Mömmuleikfimi erum búnar að vera í 4 vikur búnar með eitt námskeið og erum að byrja á öðru bara gaman í því þegar búin að missa 5 kíló! Svo átti ég afmæli núna 4 okt síðastliðinn Fimmtudag og fékk ég æðislegustu afmælisgjöf frá manninum mínum fékk Hálsmen úr 14 karata gulli svona Hjartalaga útlínur með 2 steinum hangandi í miðjunni á því bara æði ég kann ekki að vera með svona dýran skartgrip hehe er alltaf að athuga hvort það sé ekki þarna En já svona er þetta nú annars er nú bara lítið að frétta af okkur alltaf sama rútínan bara en nenni ekki að pikka meira núna gera fljótlega aftur
kv Tóta og Familian.
»
13.08.2007 17:24:55 / totab
»
27.02.2007 10:03:43 / totab
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|